Sviðstjóri fjármálasviðs HS Veitna hættir
Gunnlaugur Kárason, sviðstjóri fjármálasviðs HS Veitna, hefur sagt starfi sínu lausu en hann hefur gegnt stöðunni í níu ár. Jónas Dagur Jónasson forstöðumaður fjármála og viðskiptaþróunar, sem verið hefur staðgengill sviðsstjóra fjármála um árabil, hefur tekið við starfinu tímabundið. Starfið verður auglýst á næstunni.